Svo mikið að gera!!!

Jamm ekkert smá mikið að gera eða það finnst mér alla vegana. Er að læra undir sálfræðipróf eins og þið sjáið hehe LoL æji maður verður að taka sér smá pásu inn á milli, en ég ætla að taka prófið á morgunn svo ég verði ekki með það hangandi yfir mér alla helgina er sko ekki að nenna því. Þarf að klára skýrslugerðina í sálfræði fyrir fimmtudaginn og skila henni.

Úff já svo var að bætast inn í stærðfræðina skilaverkefni sem ég þarf að skila eftir 2 vikur og svo vikunni eftir það þá er próf í stærðfræði og guð hjálpi mér PinchUndecided Hver býður sig fram til að hjálpa mér? Þeir sem eru góðir í margliður af hærra stigi og í vigrum þeir mega sko alveg bjóða fram hjálp sína. Smile 

Það eru sko farnar að renna á mig tvær grímur núna yfir því að hafa tekið þessa stærðfræði. Þetta er ekkert smá erfitt, ég er varla að meika hana en ég ætla að harka þetta af mér Frown verð að gera það!!!

Út í aðra sálma þá er burrinn algjör draumur. Er væntanleg að fara að eyða um 100 þúsund ef ekki meira Woundering í dekk og felgur, alla vegana er ég búin að panta dekkin og á eftir að ákveða mig með felgurnar en ég býst alveg stórlega við því að ég kaupi þær líka Wink þá á maður auka sett og þarf ekki láta umfelga alltaf ef maður skiptir um dekk.

Var í söguprófi á miðvikudaginn var og það gekk allt í lagi vil ekki segja meira fyrr en ég fæ útkomuna (vil ekki gera mér of miklar vonir) Wink

Ok nú skal ég hætta Cool ætla að lesa einu sinni yfir öll verkefnin og góna svo á imbann þangað til ég fer að sofa

Later dudes


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband