Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Fáránlegt!!!

Við systa pöntuðum pizzu í gær frá Rizzo Pizzeria og aldrei munum við aftur panta þarna. 

Þetta byrjar á því að við fáum vitlausa pizzu, þannig að við hringjum og segjumst hafa fengið vitlausa pizzu!!! Greinilegt að við vorum að tala við nýja stelpu sem þekkti ekkert inn á þetta og spyr hvernig hún fari nú að þessu. Henni er sagt hvað hún eigi að gera og svo áttum við að SKILA hinni pizzunni sem við fengum. Þá alveg missti systir mín sig og sagði að það væri eins gott að þetta tæki ekki langan tíma því hún væri nú með börn sem þyrftu að borða. En NEI þetta tók 40 mínútur að bíða eftir þessari pizzu á meðan við þurftum að biða eftir fyrri sendingunni í 20 mínútur hinar pizzurnar sem við pöntuðum líka voru orðnar kaldar (maður vildi ekki byrja að borða fyrr en hinir væru nú búnir að fá matinn sinn). Þegar sendillinn loksins kom þá henti liggur við systa pizzunni í hann og sagðist finnast þetta mjög fáránlegt að þurfa að skila pizzu!!!

Ætluðu þau að borða pizzuna eða senda hana á einhvern annan, það hefði alla vegana mátt halda það!!! 

Þannig að við ætlum okkur ekki að panta þarna aftur!!! 


Fór með ömmu á Bráðamóttökuna

Jeminn hvað maður þarf að bíða alltaf lengi á þessari blessuðu bráðamóttöku. Við mættum þarna um rúmlega 5 leytið í gærdag og við tók bið frammi í svona klukkutíma, svo komumst við inn og þar var tekið smá viðtal við okkur og svo tók við næsta bið. Svona gekk þetta alveg nokkrum sinnu hálf tíma, klukkutíma biðir, hún var send í lungnamyndatöku, hjartalínurit, blóðprufur og eitthvað fleira. Við losnuðum ekki fyrr en um 11 leytið í gærkvöldi. Maður var orðinn ansi þreyttur eftir þessa bið.

Að vísu ein af ástæðunum fyrir því að við þurftum að bíða svona lengi var sú að það varð víst eitthvað alvarlegt bílslys, það komu víst 2 sjúkrabílar á meðan við vorum að bíða frammi.

En jæja ætla ekki að tala meira um þetta núna, ætla að henda mér í sturtu og koma mér svo til ömmu og kíkja á hana og kannski læra aðeins undir próf sem ég er að fara í á morgunn.


Klukk

Hún Íris klukkaði mig og ætli maður verði ekki standa við það og skrifa eitthvað:

4 störf sem ég hef unnið um ævina:

Þær eru nú ekki margar vinnurnar sem ég hef verið í:

Unglingavinnan

Nokkrir dagar á Hróa Hetti

Kirkjugarðurinn

 

4 bíómyndir sem ég held upp á:

Prinsess Diarys (fæ ekki leið af þeim)

xXx (ummm Vin Diesel)

Grease

LOTR

 

4 staðir sem ég hef búið á:

Þeir eru nú bara tveir staðirnir sem ég hef búið á:

Engjasel 29

Engjasel ..

 

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Chuck

Moonligt

House

CSI NY

 

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Svíþjóð

Finnland

Kýpur

Nova Scotia

 

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

mbl.is

dreifnam.is

flickr.com

barnaland.is

 

4 matarkyns sem ég held upp á:

Lambalæri a la pabbi

Humarhalar

Pizzan mín

Kjúklingur a la ég

 

4 bækur sem ég hef lesið oft:

Ég hef það fyrir vana að lesa ekki sömu bækurnar oft

Ísfólkið (dýrka þær bækur)

Englar og djöflar

Da Vinci lykillinn

Blekkingarleikur

 

4 bloggarar sem ég klukka:

Ég ætla að klukka:

Systu

Kollu

allir hinir sem ég þekki hafa gert svona áður Woundering 


4x4 sýning

Búin að fara tvisvar sinnum á sýninguna ég fékk mér helgarpassa og við pabbi skruppum í gærkvöldi að skoða og fórum svo aftur í dag með strákana og voru þeir sko hrifnir af stóru bílunum Grin 

Búin að setja fullt af myndum inn á myndasíðuna mína Tounge

http://picasaweb.google.com/johanna.arnors

Endilega skoðið og commentið ef þið viljið og getið Cool


Enn ein myndasíðan

Ákvað að fá mér enn eina myndasíðuna og verður hún notuð undir hinar ýmsu myndir Cool en flickr-síðan verður aðeins fyrir útvaldar myndir. 

Þessi nýja myndasíða réttara sagt forrit er svo þægileg að það tekur einungis nokkrar sekúndur að setja myndir inn á vefsíðuna sem fylgir forritinu og heldur öllu í röð og reglu Grin

http://picasaweb.google.com/johanna.arnors/  


Já sæll

Vvvvóóóó hverjir voru þessir 23 sem kíktu á síðuna í dag??? Pinch

Ég held ég hafi aldrei séð svona marga!!! hehe FootinMouth


Eftir nánari athugun...

kom annað í ljós!!! Frown

Það voru ekki bara þessi 4 leiði sem voru skemmd við töldum um 10-12 leiði sem var skemmt á. Það var búið að brjóta styttur og gler í luktum, velta legsteinum fram fyrir sig, brjóta einn legstein og brjóta nokkra krossa í viðbót og meira. Þegar ég var að kemba garðinn fann ég nokkrar bjórdósir við eitt leiðið og greinilegt að þar hafa skemmdarvargarnir setið að sumbli.

Við töluðum við lögregluna Police og hún kom og tók myndir af skemmdarverkunum en því miður getum við ekkert gert nema að reyna að hafa upp á aðstandendum og láta þá vita. Einnig var hringt frá Fréttablaðinu og það verður skrifuð grein um málið. 

Við höldum að þetta séu krakkar sem eru að koma og tína þessa ofskynjunarsveppi upp garði.

Það mætti alveg kenna þessum krökkum að sýna virðingu!!!

Vonandi að þetta veki einhverja athygli og þessir skemmdarvargar skammist sín svo mikið og muni gefa sig fram en ég held að þetta séu samt of stór draumur hjá mér að þeir gefi sig fram!!! En maður má halda í vonina Woundering

Jæja nóg um þetta mál og út í aðra sálma

Út að borða á laugardaginn á Rauðará ummmmmmm nammi nammi namm, ég hlakka ekkert smá til Joyful smá partý áður en farið verður út að borða smá bolla og sonna Grin þannig að þetta verður svaka fjör.

Er að fara í klippingu á morgunn og en ekki alveg ákveðin hvað ég ætla að gera en mig langar að fá smá breytingu alla vegana og svo ætla hún Sunna að farða mig á laugardaginn og gera mig ossalega sæta Tounge 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband