Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Innbrotsfaraldur í borginni!!!

InnbrotsþjófurÞað er víst innbrotsfaraldur í borginni og urðum við pabbi fyrir ónæði frá einum innbrotsþjófi en sem betur hefur komið styggð að honum og hann hefur ekki komist inn í íbúðina.

Ég var sem sagt að útbúa matinn og var litið á eldhúsgluggann og sé þar liggja skrúfur í gluggakistunni, fannst þetta eitthvað voða skrýtið þannig að ég fer að skoða og sá að það var búið að skrúfa stormjárnið í sundur og glugginn laflaus og búið að færa til grillið úti á svölum hjá okkur, þannig að það hefur einhver reynt að komast inn en ekki náð því og guð hvað ég er fegin því ég veit ekki hvað ég hefði gert hefði einhverju verið stolið.

Við erum búin að hringja í lögregluna og láta hana vita og búin að laga gluggann og setja krækju á hann og hér eftir verða allir gluggar lokaðir á meðan við erum ekki heima.

Ég bið ykkur að vera vel á verði og fylgjast með nágrönnum ykkur ef þeir eru ekki heima.


Hvers vegna getur fólk ekki farið eftir settum reglum?

Ég veit ekki hve oft ég hef þurft að segja fólki að það sé bannað að vera með hunda hérna í kirkjugarðinum og maður fær ýmiskonar svör til baka eins og ,,ég er með hann í ól" Er hann ekki samt hundur fyrir því?

Eða þá eins og ég var að lenda í núna að ég var að segja konu að það væri bannað að vera með hunda í garðinum og þá sagði hún að hún væri ekki komin inn í garðinn og þar að auki væri hún ekki komin að skiltinu, eins og það skipti einhverju máli hún var komin inn í garðinn og var með hund.

Svo lendum við í að þrífa upp þennan hundaskít sem forráðamenn hundanna eiga að hirða upp sjálfir.

Alveg merkilegt hvað fólk getur verið ókurteist við mann þegar maður er að benda þeim á reglur.

Ég ákvað að láta eina reglu fylgja hér með og þar segir í reglum um kirkjugarða:

Í kirkjugörðum er bannað að fara um með hesta, hunda eða önnur dýr.

Tekið úr: Reglur um umgengni í kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma nr. 810/2000.

Hér er einnig slóðin yfir reglur í kirkjugörðum:

http://www.kirkjugardar.is/starfsemi/log/reglur1.html


Smá vandræði

Úff ég er sko búin að reyna að setja mynd frá mér í hausinn og búin að breyta um þema og allt annað hvort kemur myndin alveg pínulítil í einu horninu eða hún kemur ekki.

Hvað á maður að gera?

Oki nú er ég búin að vera að fikta eitthvað þvílíkt LoL hehe

Jæja þetta kemur í ljós hvernig þetta verður WinkSólarlagið langaði bara að prófa þetta Whistling


Föstudagskvöld

Já ég sit heima hjá mér á föstudagskvöldi og er búin að liggja yfir lærdómnum og það errétt rúm vika í próf og ég er búin að vera að hreinskrifa glósur fyrir íslensku, þar að auki er ekkert og þá meina ég ekkert í imbanum. Þær rásir sem ég get horft á eru rúv og þar er mynd sem ég er búin að sjá, skjár einn endurtekning á þætti sem ég er búin að sjá og svo var survivor þáttasería númer ábyggilega tuttugu og eitthvað...... Booooooring Pinch ég held ég bara fari núna í háttinn ég fer væntanlega að fá skrifkrampa ef ég skrifa mikið meira og ég ætla bara að vakna snemma, fara í sturtu og labba Laugarveginn, skoða jólaþorpið í Hafnarfirði og sjá kannski þegar það verður kveikt á jólatrénu á hafnarbakkanum á morgunn með systu og stákunum, þannig að það verður víst nóg að gera hjá mér á morgunn LoL

Jæja ég er farin í bólið kannski ég horfi á eina DVD mynd inni í herbergi Tounge

Góða nótt 

Adios amigos Kissing


Daltonbræður bara geggjaðir

Ég sem sagt skellti mér á Players í gær á Dalton og má sko segja að þeir hafi haldið stemmingunni vel upp, þetta var alveg meiriháttar gaman. Tókum dansinn Hókí pókí sem ég hef ekki dansað síðan ég var litil og skemmtum okkur alveg konunglega Smile  en já kvöldið byrjaði á því að við Birna fórum í pool sem var alveg meiri háttar gaman höfum ekki farið í pool síðan við vorum í Glasgow í sumar þannig að það var alveg kominn tími til svo náttúrulega fóru Dalton að spila og við dönsuðum og dönsuðum og bara dönsuðum enn meira Grin  þannig að ég mæli með að fólk fari að sjá þá að balli. Við komum heim um hálf fjögur alveg búnar í löppunum og nú í dag er ég að farast í harðsperrum í lærunum LoL LoL LoL  hehe

Alveg merkilegt

Hvað er þetta með mig? Er einhver svona böggum Jóhönnu í umferðinni alla daga. Ég held það líði ekki sá dagur að eitthvað gerist í umferðinni í kringum mig.   

Það er blikkað á mig því ég á bara að keyra hraðar og bara keyra yfir næsta bíl fyrir framan mig, hvað er að fólki sem gerir það? OK allt í lagi að blikka mann ef maður er að keyra of hægt en ekki þegar það er mikil umferð og maður kemst ekkert áfram út af bílum.

Svo þegar fólk er að flýta sér eins og ég lenti í dag. Strákur á bíl fyrir aftan mig á BMW lá greinilega svo á að hann keyrði næstum á mig og annan bíl þegar við vorum að skipta um akrein. Hann sá alveg stefnuljósin okkar en hann bara gaf í þó svo að ég væri hálf komin yfir á mið akreinina og sem betur fer gat hann farið á vinstri akrein og hinn bíllinn var bara heppinn yfir því að sleppa því ekki hefði ég viljað sjá þann árekstur því gaurinn var væntanlega kominn yfir 100 km hraða hjá pizza hut á sprengisandi.

Ég er mikið búin að vera að spá í að fara að blogga um umferðina hvern dag yfir því umferðin er   en ég ætla ekki að gera ykkur það nema þegar mig langar mú hahahahahahaha   

En já kvöldið í kvöld, ég held að leiðin liggi á Players að hlusta á Dalton og sjá hvernig þeir séu á balli og ég ætla sko að dansa  


Eins gott

Hverjum datt í hug að vilja láta setja hraðbraut í Þórsmörk?
Hver vill láta eyðileggja þessa náttúrufegurð í Þórsmörk?
Ruslið sem fólk myndi henda út um rúðurnar á bílunum, myndi strax menga umhverfið, því maður veit hvernig sumt fólk er!!!
Ef að fólk vill fara þangað kynnið ykkur þá bara áætlunarferðir og ferðafélögin sem standa fyrir ferðum þangað. Þessi staður á ekki að vera fyrir smábíla og það verður nú að vera smá ævintýrastemming í að fara þangað inn eftir.
Ég elska að fara inn í Þórsmörk og skoða fegurðina þarna og taka myndir, ég er einmitt að fara þangað núna í byrjun desember með ferðafélaginu Útivist.
mbl.is Ekki lögð malbikuð hraðbraut í Þórsmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiraprófsbílstjórar!!!

Hvað er málið með suma meiraprófsbílstjóra og keyra á vinstri akrein og komast ekkert áfram?

Ég tek það fram ég sjálf er með meirabílprófið og tók það á seinasta ári þannig að ég ætti alveg að muna ýmislegt úr skólanum. En já áfram með sögu.... ég var sem sagt á leið til vinkonu minnar eitt kvöldið og er að keyra suður í Hafnarfjörð og er rétt hjá Kaplakrika. Það er trailer fyrir framan mig á hægri akrein og ég er á vinstri akrein svo ákveður hann að taka framúr bílnum fyrir framan sig en nei nei hann getur ekki einu sinni drullast framúr honum og farið aftur inn á hægri akrein heldur keyrir hann var á vinstri akrein sem gerir það að verkum að ég þarf að taka framúr honum á hægri akrein. Svo þegar við erum búin að beygja á ljósunum hjá Kaplakrika þá svínar hann fyrir jeppa sem er næstum við hliðina á honum og minnstu munar að það verður árekstur.

Ég man að ég lærði að þegar maður er að keyra svona stóra bíla þá eigi maður ekkert að vera að flýta sér þú kemur á áfangastað kannski 5 mínútum seinna og maður eigi að keyra á hægri akrein nema að maður þurfi að skipta um akrein til þess að komast á afrein til vinstri en þá bara fara tímanlega þangað yfir en það var ekki málið með þennan trukkabílstjóra eða þá að bíllinn fyrir framan mann komist hreinlega ekkert úr sporunum.

Flestir þessir bílsjórar eru mjög tillitsamir en svo eru sumir sem eyðileggja þetta fyrir þeim en svo eru líka venjulegir bílstjórar sem mættu líka alveg passa sig og sýna smá tilllitsemi gagnvart trukkabílstjórunum þegar þeir eru að vinna sína vinnu þar sem mikil umferð er


Gallup, hvað er málið?

MIkið er ég orðin þreytt á þessu Galluphringingum!!!

Það er alltaf verið að hringa og spyrja um einhvern Páll sem býr ekki einu sinni hérna og hefur aldrei nokkurn tíma verið með þetta símanúmer og það er sama hvað ég segi við þá hjá Gallup að það sé alltaf verið að hringja og spyrja um hann og þeir segja: ,,Já heyrðu ég skal koma þessu til skila".

Greinilegt að þeir koma þessu ekki til skila því alltaf er hringt aftur. Ég held ég verið dáldið reið næst ef þeir hringja aftur og segja þeim að taka þetta númer út af skránni og ef þeir gera það ekki mun ég fara lengra með þetta AngryAngryAngry


Reikningsaðferðir

Já búin að vera að sitja sveitt Sideways yfir stærðfræðinni í dag í vinnunni að læra dulbúnar annars stigs jöfnur, rótarjöfnur og óuppsettar jöfnur. Þetta er dáldið gaman fyrir utan það þegar maður fær eitt erfitt dæmi sem maður hefur ekki fengið áður og ekki einu sinni í líkingu við önnur dæmi sem maður er búinn að vera að læra með sömu formúlu.

 Ég var s.s. komin með 5 manns í að hjálpa mér Smile hehe og ég þakka þeim öllum fyrir hjálpina.Kissing  

Ég held ég hafi komist af niðurstöðu eða ég mun alla vegana skila þessari lausn sem ég held að sé rétt Wink 

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband