Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Svefn, draumar og kvef

Svefninn minn er búinn að vera eitthvað skrýtinn, veit samt ekki af hverju að vísu svaf ég vel í nótt en þar síðustu nætur var svefninn eitthvað skringilegur og þar að auki dreymdi mig ýmislegt á spænsku, ég meina hvað er málið? Pinch Það mætti halda að ég væri með spænsku á heilanum. Mig hefur að vísu áður dreymt fög í skólanum svona eins og stærðfræði og sögu Grin en það er bara daginn fyrir próf og ég er sko ekkert að fara í próf strax í spænsku. Vitleysan sem maður getur stundum dreymt en samt meikar það alveg sens í draumnum Cool

Svo er mín bara stútfull af kvefi og það er að gera mig brjálaða, ég get ekki andað með nefinu nema að vera með nefsprey og svo er bara Niagrafalls ásamt Gullfossi í nefinu og þar að auki lekur úr augunum líka svo er ég á þessu skeiði þar sem ég þarf að hnerra en get það ekki, ekkert smá pirrandi!!! Fór í tíma í gær og úff það fór heill tissjúpakki fyrir nefið á mér. Langaði liggur við að setja túrtappa í nefið á mér eins og í myndinni ,,She´s the man"! Halo hehe. Ég er núna aðeins að skána og það fór ekki alveg heill tissjúpakki í tímanum áðan og ekkert smá fegin að ég slapp við að lesa upp í spænskunni.

Jæja ég er að spá í að leggjast fyrir núna, ég er alveg hundslöpp af þessu kvefi.


Mismunun og ekkert annað!!!

Ég var að skoða heimabankann minn í morgunn og sá þar að tryggingarnar af bílnum eru komnar inn og hljóðar sá reikningur upp á 138.000.- ég var sko ekki sátt og fór beint niður eftir í VÍS og talaði við þá og þeir ætluðu eitthvað að sjá hvað þeir gætu lækkað þetta mikið af því að ég bý hjá pabba og hann er með tryggingar hjá VÍS. 

Ég vissi að tryggingarnar væru búnar að hækka en ekki alveg svona mikið!!! 

Ok svo fór ég niður í Vörð og þar var lægsta tilboðið 130.000.- svo fór ég niður í TM og þar var lægsta 143.000.- en  ég kíkti einnig á elisabet.is og þar gat ég fengið tryggingu fyrir rúmlega 107.000.- hljómar aðeins betur en mér finnst þetta mikil mismunun fyrir einstakling sem er að borga bara tryggingar af bíl og hefur alltaf verið tjónlaus og borgað sína reikninga á réttum tíma að maður skuli ekki fá nema 10% í afslátt. Á meðan systir mín er að borga 106.000 í tryggingar fyrir íbúð, 2 bíla, og eitthvað fullt meira. Það er sko greinilegt að það er ekki mikið hægt að koma á móti manni.

Ég var svo að fá hringingu núna áðan frá VÍS þar sem þeir lækkuðu tryggingarnar í tæplega 115.000.- þannig að ég er að fá sama afslátt og pabbi og ég er að spá í að halda áfram hjá VÍS. Þannig þeir gátu komið aðeins á móts við mig.


Upgrade og næstu dagar

Skólinn byrjaður á fullu, ég er búin að fara í spænsku og náttúrufræði og fer svo í íslensku á morgunn. Smile

Spænskan er rosa fín og hún er eiginlega á repeat í hausnum á mér, ég er í henni á mánudögum og annan hvern miðvikudag.

Náttúrufræðin er einnig mjög fín er samt bara svo nýbyrjuð í henni að ég get eiginlega ekki dæmt hana strax, get ábyggilega gert það næsta þriðjudag en þá fer ég í bóklegan tíma og svo verklegan eftir hann og það á ábyggilega eftir að vera gaman því það verða gerðar einhverjar tilraunir og eitthvað. Annan hvern þriðjudag er ég í náttúrufræði frá 19:30 - 22:20 maður verður nú eitthvað þreyttur eftir þann dag. Pinch

Á fimmtudögum er ég í íslensku og svo annan hvern þriðjudag og þessi annar hver þriðjudagur er ég frá kl: 18 og svo tekur við langur dagur í náttúrufræði.

Snjórinn kom í gær og ég var sko alveg sátt, Grin sumir voru nú ekkert svo sáttir og það mátti alveg sjá það á umferðinni í gær að sumt fólkið var ekki að höndla þetta. Lenti á eftir einni á VINSTRI akrein og hún keyrði á svona 50 km/hraða Devil og sama hvað ég blikkaði hana þá gat hún ekki drullast yfir á hægri akrein þó svo að enginn bíll væri þar. Það var ekki fyrr en hún var komin að aðreininni upp í Breiðholt frá Reykjanesbrautinni að þá gat hún hunskast yfir á hægri og þaðan upp í Breiðholtið og að sjálfsögðu keyrði hún eiginlega fyrir bíl sem var á hægri akrein, hún gat nefnilega ekki farið fyrir aftan þennan bíl við Lindirnar og haldið sig þar NEI hún varð að ná framúr honum og já keyra fyrir hann.

Næstu helgi erum við pabbi að spá í að skella okkur í jeppaferð og prufa bílinn ef við fáum einhvern snjó og ætlum að fara inn í Hrafntinnusker með 4x4 hópnum, er farin að hlakka dáldið mikið til hef ekki farið í almennilega jeppaferð síðan 2007 en fór ekkert síðasta ár því jeppinn hjá pabba var í breytingu mestan partinn af fyrrihluta 2008.

Úúú já svo þar næstu helgi kemur Kolla heim og váá hvað ég hlakka til að sjá hana, maður er eiginlega eins og hauslaus hæna því hún er ekki á landinu en já ég hlakka til að sjá hana og já bara þau öll Grin 

Jæja komið nóg í bili og ætla að kíkja á þennan texta í spænsku sem ég á að þýða

Hasta luego!


Annáll 2008

Verð nú að játa að árið 2008 hafi verið dáldið viðburðaríkt!!!

Við skulum byrja á því að ég hélt áfram í skólanum og sú önn gekk bara mjög vel.

Kaup ársins voru: burrinn minn, gps-tækið mitt og dráttarbeisli undir burrann og er ég bara rosaánægð með þetta allt saman því þetta er allt  saman búið að koma að góðum notum.

Viðburðir: Þorrablót með fjölskyldunni á Höfðabrekku og svo var haldið ættarmót  í september með allri fjölskyldunni, en fjölskyldan frá Svíþjóð kom öllsömul og var alveg æðislegt að hitta þau, þetta var dáldið púsl að því þau voru 10 sem komu en þetta hafðist allt saman og ættarmótið var haldið einnig á Höfðabrekku því frænka mín er með hótel og því nóg af herbergjum enda vorum við 35 manns og þá erum við bara að tala um ömmu og afa og svo börn, barnabörn og barnabarnabörn en þetta var alveg æðislega gaman.

Ferðalög: Sumarið fór nú dáldið mikið í ferðalög því ég fór norður á fjölskylduhátíðina í Hrísey. Skrapp á Flúðir með stelpunum í smá djammferð svaka fjör þar hehe og svo fórum við systa  í vikuferð hringinn um landið og fengum alveg frábært veður, vorum í alveg rúmlega 20 stiga hita í Ásbyrgi sem var frábært. Um verslunarmannahelgina skrapp ég á Laugarvatn með Kollu og Söru og var þar yfir eina nótt og skundaði svo upp í bústað og var þar alla helgina og hafði það mjög gott, fórum á smá rúnt inn í Landmannalaugar og var það rosa gaman.

Rúnturinn: Fór á 2 fornbílarúnta í sumar annar var á 17.júní og hinn var á Ljósanótt og fékk ég að prufukeyra Dodge Monaco ´69 einungis 300 hestar og algjör dreki enda líka alveg unun að keyra þann bíl.

Fréttir: Greindist með brjósklos í ágúst og byrjaði í sjúkraþjálfun og gekk brjósklosið til baka. Amma greindist með ristilkrabbamein rétt fyrir jólin og var send í aðgerð viku fyrir jól, þaðan var hún útskrifuð á Þorláksmessu og fór norður í Hrísey en varð að fara aftur inn á spítala á Akureyri því hún hafði fengið bakteríusýkingu og varð að fara í einangrun en nú er hún öll á batavegi og kemur aftur til borgarinnar í næstu viku.

Sittlítið af hverju: Fór á ljósmyndanámskeið í sumar og var það mjög fróðlegt. Sendi inn ljósmynd eftir mig og var hún sýnd í veðurfréttunum á stöð 2. Fór á 4x4 sýninguna  og skoðaði alla flottu jeppana. Fór út að borða með vinnunni á Rauðará og alveg geggjaður maturinn sem við fengum. Svo náttúrulega átti ég afmæli í sumar og fór ég út að borða með vinkonunum á Ítalíu og hélt líka smá kökuboð fyrir fjölskylduna (hef ekki gert það síðan ég veit ekki hvenær). Já og svo að lokum þá hélt ég áfram í skólanum og ég náði báðum prófunum. SmileSmileSmile

Over and out 


Skólastelpa bráðum aftur

Já já skólinn er að byrja aftur s.s. næsta mánudag og ætli fögin sem ég skráði mig í verða kennd, það er sko stór spurning??? En ég skráði mig í ísl503, nat103 og spæ103. Grin

Ég verð að játa það að ég er farin að hlakka til að byrja í skólanum en þriðjudagar eiga sko eftir að vera langir, vinna frá 8-17 og skóli frá 18-22:20 s.s. mjöööög laaaaannnngiiiiirrr dagar en þetta verður bara gaman Smile 

Jæja ég nenni ekki meira í bili, er að vinna í annál 2008 og hann kemur síðar og ætla að horfa á þennan vestra sem er í sjónvarpinu.

Later


HAPPY NEW YEAR

Búin að vera að reyna að setja inn mynd hérna frá gamlárskvöldi en það er sko ekki að ganga!!!

Alla vegana

 

GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAU GÖMLU

Ég vona að allir hafi átt góð áramót, ég átti það alla vegana. Smile

Var heima á áramótunum fyrsta skipti síðan 1996 held ég, það eru alla vegana mörg ár síðan ég var heima, annars höfum við pabbi verið flest öll árin heima hjá ömmu og afa. Við pabbi elduðum rosa góðan mat, ég var með humarhala í forrétt og pabbi grillaði lambafille í aðalrétt og svo var það ís í eftirrétt yfir áramótaskaupinu. Systa, strákarnir og Styrmir voru í mat hjá okkur og sofnuðu strákarnir ekki fyrr en um 1 leytið enda voru þeir búnir að borða snakk og nammi þannig að það var mikið fjör hjá þeim, þeir voru nú samt hræddir yfir látunum í flugeldunum. Styrmir þurfti að fara að vinna um nóttina eða klukkan 2 þannig að systa og strákarnir gistu bara hjá okkur. Um 2 leytið kom Íris og sótti mig og við skelltum okkur á Broadway á Sálina og en ég verð nú að játa að ég hef farið á betra ball með þeim, þeir hefðu mátt spila gömlu lögin sín og hafa þau aðeins líflegri, svo var ekkert annað er slagsmál þarna inni á Broadway og svo voru bara börn þarna inni 16 ára upp í 20 ára í meirihluta sem voru útúrdrukkin og gerðu ekkert annað en að slást, þannig að við eiginlega gáfumst upp á að vera þarna inni og fórum á rúntinn niður í bæ og þar var heldur betur lifandi líf Wink og ég kom heim um 5 leytið og var svo vakin af litlum gutta um 11 leytið á nýársdag.

Við systa skelltum okkur líka einnig á brennu fyrr um kvöldið, tók að vísu smá tíma að leita að brennunni en fundum hana loksins og svo var einhver hálfviti sem stakk bara einni stórri rakettu niður í jörðina og að sjálfsögðu náði rakettan ekki neinum krafti til að fara á loft og brotnaði þá prikið og hún féll niður og sprakk 3-4 metra frá okkur, við vorum mjög heppin að hafa ekki slasast því það voru 4 börn með okkur og 4 fullorðnir. Maðurinn sem gerði þetta fékk sko ærlega að heyra það frá okkur en sá var ekki sátt og sagði að við ættum bara að koma okkur í burtu ef við vildum ekki láta skjóta okkur niður.

Ég meina það hvað er að sumu fólki???

Jæja ég er hætt í bili reyni að koma þessari mynd inn á morgunn.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband