Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Karíókí og alveg brill sími

Ákvað að taka mér smá pásu frá lærdómi nánar tiltekið stærðfræði er búin að vera að skrifa reglur og sannanir sem er ekkert smá leiðinlegt og maður þarf að læra þetta allt saman, ekkert smá ömurlegt. Pinch

En já. VÁÁÁÁÁ einhvern vegin er alveg fast í mér að það sé sunnudagur í dag en það er víst ekki. Any how þá fór ég eftir skóla í gær til Kollu og við fórum yfir til mömmu hennar og Erlu í karíókí, skemmtum okkur alveg helvíti vel. Sungum alveg slatta af lögum með mismunandi frammistöðu Wink hehe en þetta karíókí er eiginlega skemmtilegra heldur en singstar, við vorum hjá þeim þangað til klukkan var langt gengin í 3 og þá héldum við heim, kellurnar orðnar nokkuð vel í því og alveg brill að sjá þær, því þær eru alveg æðislegar Tounge

Svo er það síminn minn ég kemst alltaf betur og betur að því hvað þetta er brill sími en ég fór í símann í dag og náði mér í nýtt símkort (3G símkort) sem gerir mér kleift að horfa á þá sem ég er að tala við þ.e.a.s. ef sá hinn sami sé líka með þessa þjónustu, svo fór ég að fikta ennþá meira í símanum og allt í einu þá var ég farin að horfa á skjá 1 í honum LoL

He he þannig að ég veit hvað ég geri á mánudaginn þannig að ég missi ekki af One tree hill þegar ég er í sálfræðitíma, ég bara stilli símann á skjá 1 og horfi á þáttinn Grin haha veit samt ekkert hvort Haukur kennari verði ánægður Grin hehe. Nei nei ég segi bara svona Halo

Jæja ætla að halda áfram að læra þessar reglur sem gengur ekkert smá illa Blush

Svo er rétt rúm vika í lokapróf! OMG!!!!!!!! Panic Shocking


Kominn tími á smá blogg

Hmmm hehe ég segi kominn tími á smá blogg og þá fæ ég ritstíflu, úbbs Blush.

Jæja lokaprófin nálgast eða nákvæmlega 2 vikur í þau, guð minn góðurl. Ég held að sálfræðin og sagan eigi eftir að ganga vel en annað mál er að segja um stærðfræðina því ég er alveg lost í henni en ég mun gera mitt besta.

Ég neyddist til þess á mánudaginn að kaupa mér nýjan síma því gamli síminn fór í fýlu við mig og leyfði mér ekki að tala við fólk, ég heyrði í fólkinu en þau heyrðu ekkert í mér. Eitthvað voða furðulegt. Alla vegana þá fékk ég mér NOKIA 6120 rosa flottur og hann er bleikur hehe LoL en samt ekkert rosa bleikur Joyful Pabba finnst hann samt ljótur því hann er bleikur Grin hehe. Svo er ég búin að fikta eitthvað í honum og búin að læra smá á hann og svo komst ég að því í gær að hann talar við mig LoL en ég prófaði að hringja úr heimasímanum í gær í hann og hann sagði "heima". Ég var ekkert smá hissa. Þarf samt að finna broskallana fyrir sms-in en ég er sko ekki að finna þá. Ef þið kunnið eitthvað á þennan síma þá megið þið alveg láta mig vita ef þið vitið hvar þeir eru og ef þeir séu í símanum!!! Tounge

Sunnudagurinn byrjaði snemma hjá mér því ég þurfti að greiða Þórdísi fyrir fermingu hjá systur sinni og hún hálfvegis pantaði mig til þess að greiða sér þegar hún fermist en það á eftir að koma í ljós Wink svo fór ég til Birnu að hjálpa henni með stærðfræði en það gekk ekkert voða vel því við erum búnar að læra mismunandi aðferðir. Svo fór ég til Kollu og við fórum með Söru í fyrsta skipti í sund. Hún var ekki alveg sátt fyrst en svo var hún orðin sátt og fannst voða gaman. Smile Uuuuuummmmm svo grilluðum við um kvöldið og vá hvað það var gott ToungeToungeTounge við gátum sko ekki hreyft okkur LoL hehe.

Á laugardaginn var ég komin til Kollu um 11 leytið og við skruppum í Bónus og skelltum okkur svo í Kringluna, þar leysti hún vinkonu sína af í vinnunni og á meðan rölti ég um Kringluna með Söru. Um kvöldið grillaði ég (pabbi) hehe ossalega góðan mat uummm og burraði svo til Kollu og hitti Birnu þar og við skelltum okkur í buzz og ekkert smá gaman Cool er að spá í að fá mér næst við ps2 guitar hero það er ekkert smá skemmtilegur leikur.

Úff vá þetta er orðin alveg heilmikil ritgerð og þið varla nennið að lesa lengra ef þið hafið þá lesið allt Tounge tí híhí. Ég ætla að láta þetta gott heita í bili og snúa mér að stærðfræðinni því ekki veitir af. Pinch

Adios amigos


Náttúruförðun hjá Sunnu

Hawaiianförðun 3Hawaiianförðun  

 

             Hawaiianförðun 2

 

Hérna koma nokkrar myndir frá lokaverkefni Sunnu en hún notaði náttúruförðun. Smile  


Ha ha ha ha ha

Ég verð að segja ykkur eitt ógeðslega fyndið LoLLoLLoL. Við Kolla sko grenjuðum úr hlátri.

Ok málið er það að við skelltum okkur í bíó á Fools gold, svaka góð mynd Joyful en já svo bara sátum við þarna að horfa á myndina og svo allt í einu kemur þessi þvílíki hávaði. Þá rak einhver svona rosalega við að það liggur við að salurinn hafi nötrað (hann hefur ætlað að gera þetta þegar það var mikill hasar og hávaði en svo lækkaði hljóðið og þessi hvellur kom). LoL Svo byrjaði einhver að hlæja og við Kolla að sjálfsögðu byrjum að hlæja, fyrst voða lágt og svo getum við ekki haldið í okkur og fleiri voru farnir að hlæja og við erum sko farnar að grenja úr hlátri og ég held svo að fólk hafi verið farið að hlæja að okkur því við hlógum svo mikið. VÁÁÁÁ þetta var svo fyndið, það var alveg nokkrum sinnum svo eftir þetta atvik að þetta rifjaðist upp fyrir mér og ég var næstum því búin að springa aftur úr hlátri.

Ykkur kannski finnst þetta ekkert voða fyndið, þið hafið kannski þurft að vera á staðnum en þetta var svo fyndið. LoLLoLLoL


Er ekki verið að grínast

Ég fór með burrann minn í þjónustuskoðun í gær og eitt er víst að ég fer sko aldrei aftur með hann í þjónustuskoðun ég borgaði helv.... 48.995.- fyrir þetta, takk fyrir og góðann daginn Devil ég gjörsamlega missti andlitið. Ég vissi að þetta væri dýrt en VÁÁÁÁ EKKI svona dýrt Crying ég fann alveg til með kortinu þegar hann var að strauja það. Frown Þeir meira að segja skiptu um þurrkublöð og ég er nýbúin að kaupa ný blöð. Ég var ekkert alveg sátt við það en já ég sko fer ekki aftur með bílinn minn í þjónustuskoðun enginn tilgangur lengur því hann er dottinn úr ábyrgð.

Svo út í aðra sálma þá var ég förðunarmódel hjá Sunnu í gær, ekkert smá gaman. Ég fékk svona náttúrulega förðun og var klædd í bikinitopp og með blóm í hárinu, þetta var ekkert smá flott. Svo var ég send í myndatöku hjá ekkert smá hressum ljósmyndurum, maður var nú samt alveg nett stressaður því maður vissi ekki alveg hvernig maður átti að vera en samt þetta var fjör. Grin

Jæja ég ætla að fara að drulla mér að gera eitthvað, ég ætti tæknilega séð að fara í skólann í kvöld en ég er ekki að nenna því það er próf og það gildir svo lítið að það tekur því varla, þannig að ég ætla að sleppa því.

Hey já ég fékk 9 fyrir minnistilraunina mína í sálfræði, kennarinn var ekkert smá sáttur við hana og ég líka hehe Tounge

Ok nú er ég sko hætt

blæjó

Heyrumst


Hvernig finnst ykkur?

Hvernig finnst ykkur? 

He he var að leika mér inni á facebook fyrr í kvöld og var að breyta um hárgreislu og líkama. Cool

Ætti ég ekki að vera svona? Grin

 


Dagurinn í gær

Var nú bara hinn rólegasti var í vinnunni, kom svo heim um 5 leytið og ákvað að prufa nýja ps2 leikinn minn sem er svona mjög nálægt því að vera bodycombat maður lærir ýmsar hreyfingar og lærir sjálfsvörn og svo er einkaþjálfari í þessu og sagt hvað maður er að brenna miklum kaloríum og alveg fullt meira. Ekkert smá sniðugt og gaman og tók dáldið mikið á Grin hehe. Versta er að ég náði ekki að stilla eyetoy nógu vel þannig að allur líkaminn sást en þetta er bara smá stillingavandamál.

Svo var ég mætt upp í skóla hjá Sunnu um 7 leytið því hún var að fara í próf og ég var módelið hennar í kvöldförðun sem var nokkuð gaman Smile

Hérna sjáið þið myndir af förðuninni. 

Djö myndirnar vilja ekki koma inn eins og ég vil að þær komi en hérna eru þær samt. Joyful        

Kvöldförðun hjá Sunnu

   

Kvöldförðun Sunna

 

        

Leti og helgin!!!

Tounge Ætlaði að byrja í morgunn að læra stærðfræði en er ekki einu sinni búin að taka bækurnar upp úr töskunni Whistling hehe. Greinilegt að ég er sko ekki að nenna að læra GetLost .

Aftur á móti hlakkar mig til að fara í skólann í kvöld og fara í sálfræði erum að fara að hlusta á fyrirlestur um geðklofasjúklinga sem heyra raddir og svo um húðkroppunarárráttu og hárreytiáráttu þannig að þetta gæti orðið eitthvaa interresting. Smile

Já svo var ég í sálfræðiprófi á laugardaginn og fékk 9 Grin alveg sátt við þá einkunn en það svo sem skipti ekkert máli hvað ég hefði fengið í þessu prófi.

Svo var farið í ísbíltúr með Birnu og Alexander syni hennar og hittum svo Kollu og Söru dóttur hennar og skelltum okkur í bæinn og enduðum við Birna á því að versla föt fyrir kvöldið Grin , alltaf gaman að versla Halo.

Um kvöldið vorum við í mat hjá Kollu og fórum svo í diskókeilu því Pétur átti afmæli og héldum svo í bæinn á Rex og English pub og kom heim um 5 leytið.

Dagurinn í gær var þannig að ég fór í ræktina og svo upp í vinnu að svampaþvo bílinn Tounge og svo enduðum við Íris á smá ísrúnt LoL hehe. Já og svo í gærkvöldi fór ég til Sunnu og hún var að æfa sig í tímabilaförðun á mér Smile.

Jæja ætli það sé ekki best að fara að koma sér til ömmu og skutla henni til læknis og það verður víst ekki mikill lærdómur núna hjá mér Grin tí hí hí hí.

See you later aligator, after while crocodile 


Tí hí hí hí

ÉG ER ROSALEG!!! Tounge.

Ég er að fara í sálfræðipróf núna um helgina á netinu og og ég er sko ekki að nenna því. Finn mér eitthvað annað að gera t.d. vaska upp, elda (eldaði rosa gott fahjitas með kjúkling), fara í tölvuna og skrifa hérna á bloggið, en ég er samt búin að sýna smá lit og búin að lesa 10 bls. og á eftir 30 bls. hehe Grin

Ég þarf að vísu ekkert að fá svaka góða einkunn í þessu en við tökum 3 próf og 2 bestu prófin eru metin og ég er búin að fá 9,5 og 10 þannig að það gæti eiginlega ekki verið betra nema ég fengi aðra tíu en það skiptir svo sem ekkert miklu máli Wink en ég geri mitt besta.Sideways

Jæja kominn tími á að lesa 10 aðrar bls. í viðbót áður en ég tek næstu pásu hehe Wink.


Heeeeeeyyyyyyy!!!

Bara að minna ykkur á myndasíðuna mína ToungeToungeTounge

Hér er slóðin:

http://www.flickr.com/photos/johanna_arnorsd/


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband