Ekkert smá stolt af sjálfri mér

Fékk úr skilaverkefninu mínu í gær og fékk 9,5 fyrir það, bara nokkuð gott Cool

Næstum búin með rannsóknarverkefnið mitt fyrir sálfræðina. Búin að gera innganginn sem er ein blaðsíða vélrituð Pouty tók smá tíma en kennarinn ætlar að fara yfir þetta áður en við skilum þessu svo við vitum hvort við séum á réttri leið með þessa skýrslu. Búin að ljúka við tilraunina en hún tengist rannsókninni sem við áttum að gera í exel, fékk góða hjálp frá Möggu frænku í að gera súluritin þau voru ekki alveg að koma rétt út Pinch nema bara eitt þeirra Joyful þannig að þetta er allt að smella saman eða það vona ég hehe Wink

Lokapróf í næstu viku úr fyrstu 126 bls í sögu, ég ætla að rúlla því upp Cool hehe og svo opnast sálfræðiprófið þann 22.feb. og lokar 25.feb. og það skal ganga eins vel og hitt prófið þar sem ég fékk 9,5 Cool þannig að það er bara nóg að gera hjá mér.

Ég er ekkert að monta mig er það nokkuð GrinGrinGrin

Dísa frænka ætlar svo að koma á morgunn og ætlar að fá að gista hjá mér því Magga mamma hennar er að fara upp á Bifröst á námskeið þar og kemur aftur á laugardaginn. Við ætlum að gera eitthvað sniðugt af okkur svona kannski eins og að kíkja í búðir og shoppa Cool he he.

Mér líður eins og ég sé með munnræpu og ég held að það sé kominn tími á að fara að lúlla sér, þannig að ég segi bara góða nótt og sofið þið vel hvað svo sem þið eruð mú hahahahahahaha

ok ég er farin að sofa

blæblæ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ dú not læk jú!!!!!!!!!!!!!!

Íris Ósk (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband