Dauðaleit

Ég er búin að gera dauðaleit af stýrisleðum/stiga sleðum og vantar tvö stykki svoleiðis. Cool Ég veit ég er bjartsýn Halo en það þýðir ekkert annað. Whistling

Búin að fara í Intersport, Byko, hringdi í Toy´R´us og Útilíf, spurðist fyrir hjá vinkonu minni í Europris og alls staðar er þetta búið. Það hafa greinilega allir fengið sömu hugmynd og ég Woundering 

Silla vinkona er samt búin að vera alveg meiriháttar, benti mér á fleiri staði og að á hringja á Akureyri í skíðaþjónustuna sem ég ætla að gera og svo er einn staður í viðbót sem mér dettur í hug FootinMouth 

Ég yrði meira að segja mjög ánægð ef ég fengi bara einn sleða og ég vona að þeir séu ekki uppseldir á landinu eins og ég er búin að heyra. Pinch

P.S. sótti einkunnirnar áðan og ég náði fögunum sem ég var í og rosa ánægð með það Grin nú er bara að ákveða sig hvaða fög ég tek næst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Smilla

Heyrðu já - tökum secretið á þetta og hugsum ógeðslega stíft um að þú fáir sleðana á morgun. Þetta er snilldar gjöf sem slær alltaf í gegn. Þetta skal reddast!!

Já og flott með prófin þín - til hamingju með árangurinn skvís

Smilla, 17.12.2008 kl. 00:08

2 Smámynd: Jóhanna Arnórsdóttir

Jæja þar fór það, hringdi í umboðið sem er með Stiga og allt uppselt bú hú hú :(

Ég verð bara að finna einhverja aðra flotta gjöf handa frændunum :)

Jóhanna Arnórsdóttir, 17.12.2008 kl. 09:12

3 Smámynd: Smilla

ohhhhhhh...

Smilla, 17.12.2008 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband