Ég náði!!!

Fór upp í skóla áðan alveg í brjálaðri rigningu og roki (labbaði upp í skóla frá systu) og náði í einkunnirnar mínar og ég er ekkert smá ánægð því ég náði öllum fögunum og fékk 7 í öllu Joyful Smile þannig að nú get ég haldið áfram að skoða næstu fög sem ég ætla að fara í en á dáldið erfitt með að ákveða mig.

Get ekki ákveðið hvort ég eigi að taka stæ 303 eða ísl 403 en þessi fög eru kennd á sama tíma þannig að það verður árekstur að vísu er íslenskan í dreifnámi en ohhhh ég veit ekki Undecided en ég er búin með kjarnann í stærðfræðinni þannig að það er spurning hvort ég bíði þangað til á næstu önn með að taka stærðfræðina en ég hlýt að finna út úr því og svo er ég að spá í að taka sálfræði og kannski spænsku eða klára bara dönskuna og þá er ég búin með hana.

Þannig að þetta er allt stór spurning en ég get alveg velt þessu fyrir mér um jólin því skólinn byrjar ekkert fyrr en 14. jan.

Langaði bara að deila þessu með ykkur Grin

Heyrumst blæblæ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

TIL LYKKE skvís

hlakka til að sjá þig þegar ég kem á klakann

Sólveig (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 07:47

2 identicon

Uss...rusla stærðfræðinni af eins fljótt og hægt er. Líka verra að láta líða langt á milli. Þú rústar þessu

Smill (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband