Jólapróf

Æðislegt var búin að skrifa alveg fullt og setja inn mynd en nei mín var ekki alveg sátt hvernig myndin kom þannig að ég ákvað að breyta og þá bara datt allt út Devil djö....

Alla vegana í gær var fyrsta prófið mitt sem var stærðfræði og mér gekk allt í lagi vil ekki segja meira fyrr en ég fæ niðurstöðurnar úr prófinu.

Nóttina fyrir prófið ætlaði ég aldrei að sofna og var alltaf að vakna Frown dagurinn fór í það svo að læra meira undir prófið og svo þegar ég kom heim úr vinnunni ákvað ég að leggja mig og mig dreymdi bara stærðfræði Woundering 

Næsta próf verður næstkomandi mánudag og það er íslenska, verð að byrja að læra undir það en erfitt að byrja að læra og einbeita sér að próflestri. Þar að auki er ég að fara í jeppaferð um næstu helgi í Þórsmörk og ekki verður nú mikið um lærdóm þá Woundering því það verður farið í gönguferðir og haldin kvöldvaka og svoleiðis.

Jæja nóg komið að rausi og ég ætla að fara að gera eitthvað Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband