Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
Börn eiga ekki að leika með eld!!!
31.1.2008 | 08:59
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bara brill!!!
30.1.2008 | 10:36
Löggan er byrjuð að sekta fólk fyrir að skafa ekki rúðurnar á bílunum sínum. Mætti kannski vera aðeins hærri sekt en vonandi að þetta sé nóg til þess að fólk fari að hugsa betur og skafa rúðurnar, fólk mætti líka hreinsa betur snjóinn af bílunum sínum því það er ekkert gaman að vera fyrir aftan næsta bíl sem hefur ekki hreinað snjóinn af bílnum sínum og það getur gert það að verkum að næsti bíll fyrir aftan hann fái allan snjóinn á sig og blindist og þar með getur orsakast slys, eins erum við að tala um húddið og ljósin hreinsa líka af því!!!
Ég mæli með að fólk fari á næstu bensínstöð og fjárfesti sér í sköfu með kústi áföstum, mjög sniðugt fyrir þá sem ekki eiga svona.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Djamm í gær
27.1.2008 | 22:39
Geggjað djammið hjá okkur stelpunum í gær. Byrjuðum heima hjá Kollu og þar söfnuðumst við saman og elduðum þessa æðislega góðu pizzu svo bara var kjaftað og við gerðum okkur sætar og fínar fyrir djammið. Við vorum nú allar eitthvað voða óákveðnar með að fá okkur í glas en svo enduðum við allar á fyllerýi nema Annamaría hún ákvað að vera á bíl.
Byrjuðum á Vegamótum þar sem að nokkrir drykkir voru drukknir þar hehe Skelltum okkur svo á English Pub að hitta bróður hennar Sillu þar sem hann bauð okkur Southern Comfort skot og áttum að gera einhverjar kúnstir við að drekka þetta haha vá hvað okkur sveið rosalega í munninn og niður í maga eftir þessar kúnstir hehe Ég var komin heim eitthvað rúmlega 3 held ég.
Í dag var víst dáldið þynnka og þreyta í gangi :S sérstaklega þreyta, ég er sko að tala um það að ég hef ekki einu sinni meikað að læra þannig að ég verð að vera rosa dugleg á morgunn að læra í vinnunni bæði fyrir stærðfræðina og svo sálfræðina en ég er víst að fara í próf um næstu helgi í sálfræði. Smá kvíði í gangi því ég hef aldrei farið í próf á netinu en þetta hlýtur að ganga vel
Komið nóg í bili ætla að fara að horfa Dexter og kannski poppa mér.
Adios amigos
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað er með þetta veður?
25.1.2008 | 18:45
Hvernig væri það að veðrið færi nú að batna og það myndi ákveða sig hvernig það ætlaði að vera!!!
Getur ekki bara verið snjór og þessi rigning má koma í vor hehe leiðinlegt að fá þessa hláku því það verður alla á floti.
Ég lenti nú í því á mánudaginn þegar ég var að koma úr skólanum og á leiðinni út í bíl að ég steig ofan í þennan stóra polla því ég sá hann ekki fyrir dimmu og snjó yfir pollinum en ég verð nú bara að játa að þetta var dáldið fyndið hehe. Bara mín heppni!!!
Ekkert smá leiðinlegt veður í morgunn og í dag. Ég lenti í því að festa mig þegar ég kom inn í garðinn og vantaði bara nokkra metra í það að ég kæmist í stæði hehe en það var víst ekkert annað en að hoppa inn í hús og galla sig upp og svo fórum við pabbi í það að draga hann upp. Það tók nú ekki langan tíma að ná burra upp en svo þurfti ég að taka doddann og ná í systu heim til hennar og þá var nú orðið dáldið skaplegra veður.
Við pabbi þurftum að fara út að vinna moka snjó og taka gröf. Fólkið var nú heppið að það kom ekki akkúrat hvolfa yfir þegar líkfylgdin kom upp í garð.
En já út í aðra sálma núna Nýja aðdráttarlinsan mín er komin og ekkert smá gaman hjá mér núna Nú get ég tekið betri myndir langt í burtu
Þessa mynd tók ég í dag, akkúrat þegar hrafninn var að reyna að fljúga en gekk voða illa og það var snjókoma og skafrenningur úti.
Oki komið nóg í bila ætla að fara að finna mér eitthvað að borða og henda mér í sturtu.
Heyrumst síðar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Margliður af hærra stigi
22.1.2008 | 14:40
Kræst þessi stærðfræði er að gera mig geðveika ég botna hvorki upp né niður í þessu. Að vísu er ég bara búin að fara í tvo tíma og þetta virkaði svo auðvelt þegar kennarinn var að sýna þetta en svo þegar ég kem heim og byrja að reikna sjálf þá er þetta ekkert svo auðvelt nema kannski fyrsta dæmið sem ég gat. Sem sagt ég er að lenda í vandræðum með fyrrhlutann í dæmunum og svo þegar ég fæ rétt svar úr fyrrihlutanum er seinni hlutinn pís of cake.
Þannig að ef einhverjir bjóða sig fram í að hjálpa mér með þetta aðeins þá skal ég glöð þiggja þá hjálp
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Smá upp-date
16.1.2008 | 13:28
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Litlu jólin
8.1.2008 | 13:30
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Annáll 2007
4.1.2008 | 09:25
Ég hélt að ég myndi ekki eftir miklu sem gerðist á þessu ári en það er greinilegt að það er fljótt að rifjast upp hehe.
Ég náði meiraprófinu í byrjun ársins þannig að nú má mín keyra vörubíl og ég stóð mig vel í prófinu. Mjög sátt með það!!!
Skráði mig svo í kvöldskóla í FB og náði þessum 3 fögum sem ég tók í vorprófunum.
Fór í afmælis-sumarbústaðaferð með Sunnu og þar var svakafjör og mega flottur bústaður. Bakaði köku þar en hún varð smá slys en rosa góð samt sem áður hehe.
Fór í jeppaferð með pabba og nokkrum úr Utanvinafélaginu 4x4 og sú ferð var bara ævintýri út í eitt. Lentum í miklum krapa þannig að þær voru ófáar festurnar þar og ein þeirra stóð yfir í nokkra tíma. Pabbi varð að vaða útí krappann og það var víst nokkuð mikið kalt, til að ná að setja reipi í bílinn og svo varð næsti bíll að kippa í okkur o.s.frv. Við vorum 7 tíma að komast 23 km. í þeirri ferð.
Fór í 3 fermingar og ein þeirra var norður í land í Hrísey hjá Dísu Rún.
Keypti mér rosa flotta digital myndavél :P hehe og nú get ég skemmt mér við að taka myndir (þarf samt að læra aðeins betur á hana)
Eldur kom upp í kjallaríbúðinni fyrir neðan okkur og stigagangurinn fullur af reyk, við hringdum í 112 og létum íbúendur vita.
Skrapp austur á Egilsstaði á kirkjugarðsráðstefnu þar var svakafjör fyrir utan fundinn hehe en hann var stuttur miðað við hvað hann er venjulega svo var farið í ferð í aðrennslisgöng 1. fyrir Kárahnjúka og þetta er svaka stórt.
Við tók sumarvinnan eftir þessa ferð og var alveg brjálað að gera enda tók ég ekkert frí nema 2 daga til að skreppa út til Glasgow með Birnu í smá verslunarleiðangur hehe og smá afslöppun þó svo að hún hafa ekki verið mikil í öllum þessum verslunum hehe
Kolla vinkona eignaðist litla prinsessu sem heitir Sara Margrét og ég skrapp nokkrum sinnum upp í sumarbústað og tók þá Sigurð Jóhann og Jón Arnór með.
Við krakkarnir í vinnunni fórum út að borða á Rauðará eins og venjulega og var maturinn alveg meiriháttar og svaka gaman, skrapp svo á Papaball eftir matinn með Birnu og skemmtum við okkur ekkert smá mikið.
Tók smá frí frá jólaprófalestri og fór í jeppaferð í Þórsmörk í byrjun des. og þar var að sjálfsögðu fjör eins og alltaf.
Náði jólaprófunum og var svo bara að undirbúa jólin og slappa af um hátíðarnar.
Ég ætla að láta þetta gott heita núna
Heyrumst síðar
Bloggar | Breytt 7.1.2008 kl. 16:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla
1.1.2008 | 22:28
VÁÁ!!! Heldur betur letilíf í gangi hjá mér ég er sko ekkert búin að gera í dag nema góna á imbann og svo aðstoða við smá matarboð hérna heim.
Nýja árið gengið í garð og árið 2008 komið. Við pabbi vorum í mat hjá ömmu og afa, svaka góður matur, fengum hvítlaukshumarhala í forrétt, lambafille í rjómasósu og ís í eftirrétt, ummm hvað þetta var gott Kvöldið varð svo bara rólegt hjá mér ætlaði að fara til systu en hún veiktist um kvöldið þannig að ég varð bara róleg og horfði á mynd heima, þetta var voða kósý liggja bara upp í rúmi og góna á mynd
Við Birna fórum út að borða á sunnudaginn á Ruby thusday og svo til systu í playstation, ég eða við kynntum Birnu fyrir Disney-golfi í playstation og við skemmtum okkur bara heldur betur hehe.
Jæja ætla að láta þetta duga í bili nenni ekki að koma með annál fyrir síðasta ár þannig að við heyrumst bara síðar.
Er sko ekki að nenna að fara í vinnu á morgunn hehe
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)