Seinasta prófið í kvöld
15.5.2008 | 10:42
Ég hélt nú að ég yrði nú eitthvað stressuð en ég finn ekki fyrir miklu stressi, það kannski kemur í dag þegar það fer að líða nær prófinu.
Ég er svo innilega ekki að nenna að læra undir það, mig langar að vera komin í sumarfrí frá skólanum. Þetta verður samt ljúft að vera búinn í kvöld og svo þarf maður bara að ná í einkunnirnar sínar á mánudaginn.
Gvöð hver ætli niðurstaðan úr þeim verði ég vona að hún verði góð, alla vegana sæmileg og ég hafi náð prófunum.
Jæja best að halda áfram próflestrinum og demba sér í minniskaflann.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.