Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
HJÁLP!!!
27.2.2008 | 15:49
HEY þeir sem nenna og geta hjálpað mér með þessi dæmi mega alveg senda mér lausnirnar og svörin ég er orðin alveg tóm í hausnum á að reyna við þessi dæmi.
Þannig að endilega ef ykkur leiðist og langar að hjálpa mér þá megið þið það alveg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Svo mikið að gera!!!
22.2.2008 | 21:13
Jamm ekkert smá mikið að gera eða það finnst mér alla vegana. Er að læra undir sálfræðipróf eins og þið sjáið hehe æji maður verður að taka sér smá pásu inn á milli, en ég ætla að taka prófið á morgunn svo ég verði ekki með það hangandi yfir mér alla helgina er sko ekki að nenna því. Þarf að klára skýrslugerðina í sálfræði fyrir fimmtudaginn og skila henni.
Úff já svo var að bætast inn í stærðfræðina skilaverkefni sem ég þarf að skila eftir 2 vikur og svo vikunni eftir það þá er próf í stærðfræði og guð hjálpi mér Hver býður sig fram til að hjálpa mér? Þeir sem eru góðir í margliður af hærra stigi og í vigrum þeir mega sko alveg bjóða fram hjálp sína.
Það eru sko farnar að renna á mig tvær grímur núna yfir því að hafa tekið þessa stærðfræði. Þetta er ekkert smá erfitt, ég er varla að meika hana en ég ætla að harka þetta af mér verð að gera það!!!
Út í aðra sálma þá er burrinn algjör draumur. Er væntanleg að fara að eyða um 100 þúsund ef ekki meira í dekk og felgur, alla vegana er ég búin að panta dekkin og á eftir að ákveða mig með felgurnar en ég býst alveg stórlega við því að ég kaupi þær líka þá á maður auka sett og þarf ekki láta umfelga alltaf ef maður skiptir um dekk.
Var í söguprófi á miðvikudaginn var og það gekk allt í lagi vil ekki segja meira fyrr en ég fæ útkomuna (vil ekki gera mér of miklar vonir)
Ok nú skal ég hætta ætla að lesa einu sinni yfir öll verkefnin og góna svo á imbann þangað til ég fer að sofa
Later dudes
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýr bíll í hlaðinu!!!
18.2.2008 | 22:15
Já já það er kominn ný/gamall bíll í hlaðið en ég kauptaði mér bíl í dag
Fékk mér Suzuki Grand Vitara XL7 svaka flottur, ameríkutýpan með stóru vélinni þannig að það sko sko alveg dágóður kraftur í honum Hann er sjálfskiptur, rauður á litinn og bara fullt fullt meira í honum þannig að já mín loksins komin á jeppa Nú þarf ég bara að kaupa ný dekk og finna einhverja tryggingu á hann.
Ég ætla að reyna að koma inn myndum af honum við fyrsta tækifæri en nú verð ég að fara að læra undir sögupróf þetta gengur ekki lengur á eftir að lesa 70 bls af 126 bls og glósa og læra svör fyrir miðvikudaginn og svo eftir það það próf tekur næsta próf við sem er sálfræði þannig að ég ætla að kveðja núna
Heyrumst síðar blæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ekkert smá stolt af sjálfri mér
14.2.2008 | 23:20
Fékk úr skilaverkefninu mínu í gær og fékk 9,5 fyrir það, bara nokkuð gott
Næstum búin með rannsóknarverkefnið mitt fyrir sálfræðina. Búin að gera innganginn sem er ein blaðsíða vélrituð tók smá tíma en kennarinn ætlar að fara yfir þetta áður en við skilum þessu svo við vitum hvort við séum á réttri leið með þessa skýrslu. Búin að ljúka við tilraunina en hún tengist rannsókninni sem við áttum að gera í exel, fékk góða hjálp frá Möggu frænku í að gera súluritin þau voru ekki alveg að koma rétt út nema bara eitt þeirra þannig að þetta er allt að smella saman eða það vona ég hehe
Lokapróf í næstu viku úr fyrstu 126 bls í sögu, ég ætla að rúlla því upp hehe og svo opnast sálfræðiprófið þann 22.feb. og lokar 25.feb. og það skal ganga eins vel og hitt prófið þar sem ég fékk 9,5 þannig að það er bara nóg að gera hjá mér.
Ég er ekkert að monta mig er það nokkuð
Dísa frænka ætlar svo að koma á morgunn og ætlar að fá að gista hjá mér því Magga mamma hennar er að fara upp á Bifröst á námskeið þar og kemur aftur á laugardaginn. Við ætlum að gera eitthvað sniðugt af okkur svona kannski eins og að kíkja í búðir og shoppa he he.
Mér líður eins og ég sé með munnræpu og ég held að það sé kominn tími á að fara að lúlla sér, þannig að ég segi bara góða nótt og sofið þið vel hvað svo sem þið eruð mú hahahahahahaha
ok ég er farin að sofa
blæblæ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvernig stendur á því...
12.2.2008 | 12:37
að pósturinn hérna í Hafnarfirði er með svona rosalega lélega þjónustu.
Við hérna í Kirkjugarðinum erum að fá póst sendan hingað rúmlega viku eftir að hann er stimplaður.
Mér finnst þetta til háborinnar skammar. Garðurinn er löngu orðinn innanbæjar og það ætti nú ekki að vera erfitt að skutla smá pósti til okkar á hverjum degi alla vegana annan hvern dag.
Sama hvað við kvörtum þá er greinilega ekki hlustað á okkur.
Ég bara varð að tjá mig um þetta
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta er eitthvað vitlaust
11.2.2008 | 13:40
Útkall vegna bruna í ofni á útfararstofu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 12.2.2008 kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ha ha ha ha ha ha
8.2.2008 | 14:37
Vá ég er sko búin að liggja í hláturskasti yfir ekkert smá fyndnum og aulalegum myndböndum og ég ætla að deila þeim með ykkur
Ég bara varð að deila þessu með ykkur en bara svo þið vitið þá eru þetta allt konur sem eru undir stýri og ég held að sumar hafi fengið bílprófið í coco puffs pakka hehe
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sko!!!
8.2.2008 | 09:04
Úff ef að það verður alveg brjálað veður seinnipartinn (20-28 m/sek. og mikla rigningu) og ef veðrið í kvöld verður svona leiðinlegt þá lítur allt út fyrir það að við þurfum kannski að fresta hittingnum hjá okkur Kollu og Birnu í kvöld og einmitt núna en sko ekki gott veður það er él og farið að hvessa.
Það verður heldur ekki gaman að fara út á eftir að taka gröf og sérstaklega fyrir fólkið í dag þegar það kemur upp í garð. Ég vona samt að veðrið verði ekki komið almennilega fyrr en seinnipartinn þegar við erum búin að vinna.
Og eins og útlitið er fyrir helgina þá efast ég um að við förum austur í Vík á þorrablót damn ég sem var farin að hlakka svo til.
Ha ha ég var að vafra á netinu og fann þetta
Hvar er snjóstormurinn?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mikið að gera á næstunni
5.2.2008 | 19:32
Ekkert smá mikið að gera á næstunni hjá mér á að skila skilaverkefni í stærðfræði og sögu í næstu viku þann 20.feb er lokapróf í fyrsta kaflanum í sögu og sálfræðipróf þann 22-25.feb minnir mig (tekið á netinu), svo á ég að gera tilraun og gera skýrslu um hana í sálfræði og skila henni 29.feb og svo er alveg fullt af heimalærdómi þannig að smá mikið að gera en þetta hlýtur að hafast.
Út í aðra sálma spennandi helgi framundan við Birna plönuðum það að fara til Kollu á föstudaginn og kannski borða saman og spila þannig að KOLLA!!! ef þú lest þetta áður en við tölum við þig þá veistu að við erum að koma til þín!!! hehe svo á laugardaginn byrjar dagurinn á því að fara til Sunnu gellu og slétta á henni hárið því hún er að fara árshátíð. SUNNA!!! Mundu að taka fullt af myndum!!! Eftir það verður haldið á austur í Vík í Mýrdal á Höfðabrekku að hitta frændfólkið og fara á þorrablót með þeim, þetta verður væntanlega eitthvað skrall og mikið borðað hehe
Jæja ætla að fara að læra núna ekki veitir af
Hey já setti inn 4 myndir áðan af litlu frændunum mínum á bolludaginn og sprengidaginn sem er í dag Sigurður var dáldið skrautlegur þegar hann var að borða bolluna
Heyrumst blæblæ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bara gaman :)
1.2.2008 | 14:13
Ég fór sem förðunarmódel hjá Sunnu í gær og þetta var ekkert smá gaman og vá hvað þetta var þægilegt hefði alveg getað sofnað hehe Þetta var alveg meiriháttar flott hjá henni þannig hún fór að sjá um mínar farðanir ef ég er að fara eitthvað fínt Ertu ekki alveg til í það Sunna mín?
Ég er búin að setja inn nokkrar fyrir og eftir myndir
Út í aðra sálma þá ætti ég að vera að læra undir sálfræðipróf sem ég er sko alls ekki að nenna og hef alla helgina til að taka prófið en ætla að stefna á það að taka prófið á morgunn þannig að ég geti verið Sunnu og Sollu á laugardagskvöldið og skemmt mér með þeim
Jæja ég er búin að vinna og ætla kannski að kíkja með kollu í ikea og svo ætla ég að læra í kvöld bara undir prófið
Adios my friends
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)