Eftir nánari athugun...
1.10.2008 | 20:44
kom annað í ljós!!!
Það voru ekki bara þessi 4 leiði sem voru skemmd við töldum um 10-12 leiði sem var skemmt á. Það var búið að brjóta styttur og gler í luktum, velta legsteinum fram fyrir sig, brjóta einn legstein og brjóta nokkra krossa í viðbót og meira. Þegar ég var að kemba garðinn fann ég nokkrar bjórdósir við eitt leiðið og greinilegt að þar hafa skemmdarvargarnir setið að sumbli.
Við töluðum við lögregluna og hún kom og tók myndir af skemmdarverkunum en því miður getum við ekkert gert nema að reyna að hafa upp á aðstandendum og láta þá vita. Einnig var hringt frá Fréttablaðinu og það verður skrifuð grein um málið.
Við höldum að þetta séu krakkar sem eru að koma og tína þessa ofskynjunarsveppi upp garði.
Það mætti alveg kenna þessum krökkum að sýna virðingu!!!
Vonandi að þetta veki einhverja athygli og þessir skemmdarvargar skammist sín svo mikið og muni gefa sig fram en ég held að þetta séu samt of stór draumur hjá mér að þeir gefi sig fram!!! En maður má halda í vonina
Jæja nóg um þetta mál og út í aðra sálma
Út að borða á laugardaginn á Rauðará ummmmmmm nammi nammi namm, ég hlakka ekkert smá til smá partý áður en farið verður út að borða smá bolla og sonna þannig að þetta verður svaka fjör.
Er að fara í klippingu á morgunn og en ekki alveg ákveðin hvað ég ætla að gera en mig langar að fá smá breytingu alla vegana og svo ætla hún Sunna að farða mig á laugardaginn og gera mig ossalega sæta
Athugasemdir
oj þetta er ömurlegt. Alveg ótrúlegt hvað fólk getur ekki borði virðingu fyrir hlutum.
Vonandi náið þið í skottið á þeim!
Kv. Drífa
Drífa frænka (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 12:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.