Hversu ömurlegt er þetta?
16.3.2008 | 21:41
Fór út áðan því ég nennti engan vegin að hanga heima og ég endaði bara ein á rúntinum ekkert smá ömurlegt.
Þarf að fara að finna mér kall til að gera eitthvað með, einhvern sem nennir að koma með mér út í göngutúra, ferðast með eða bara kúra upp í sófa og hafa kósý. Flest allir vinir manns eru komnir með fjölskyldu og nenna ekki út eða komast ekki út.
Ég ætti kannski að stofna svona útivistaklúbb fyrir einhleypa þannig að ég auglýsi hér með eftir fólki sem vill koma í útivistaklúbb með mér og ég auglýsi líka eftir karlmanni!!! hehe
Athugasemdir
Ég skal mæta í utivistarklúbbinn þinn ;) Ekki málið
Íris Ósk (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 22:28
Oki cool þá erum við orðnar tvær
Jóhanna Arnórsdóttir, 16.3.2008 kl. 22:30
Hey, það er til svona klúbbur ...heitir minnir mig soloklúbburinn - gott ef hann er ekki með heimasíðuna www.soloklubburinn.com
Smilla, 16.3.2008 kl. 23:25
Hehe hann er víst bara fyrir 30-50 ára það vantar enn tvö ár upp
Jóhanna Arnórsdóttir, 17.3.2008 kl. 16:50
óhh...sowwy, er ekki mikið inn í þessum sólómálum svo ég hafði ekki hugmynd...pínu langt síðan ég var sóló sko.
Smilla, 17.3.2008 kl. 17:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.