Færsluflokkur: Bloggar

Páskar

GrinDíses hvernig fer ég að þessu Devil þetta er svo heimskulegt af mér Pinch eina ferðina enn, var ég búin að skrifa alveg fullt og svo bara ákvað mín að skoða bara síðuna án þess að vista. EKKERT SMÁ STUPID!!!

Alla vegana ég ætla að reyna að rifja upp það sem ég skrifaði og þetta byrjaði einhvern vegina svona.

 

Gleðilega páska

 

Öll sömul og vonandi að þið hafið átt góða páska.

Mínir eru bara búnir að vera rólegir. Við Birna fórum á svaka rúnt á föstudaginn langa og enduðum bara upp í bústað en fyrst byrjuðum við á því að fara upp í Bláfjöll og svo keyrðum við Þrengslin og svo hringir frænka mín og vantar hjálp í stærðfræði. Það gekk dáldið illa að útskýra þetta í símanum og fyrst við vorum í Hveragerði ákvað ég bara að skella mér upp í bústað og hjálpa henni og sýna Birnu bústaðinn í leiðinni. Var svo í mat hjá Birnu í kvöldið og fórum svo til Kollu.

Laugardagurinn byrjaði þannig að systa og strákarnir komu í heimsókn og ég setti á skinkubrauðtertuna en ég var að fara í saumaklúbb um kvöldið hjá Kollu. Systa sofnaði svo í sófanum rétt eftir hádegið og ég kom Sigurði til þess að taka lúrinn sinn, tók smá tíma því þetta barn er þrjóskt hehe Grin . Eftir lúrinn hans fórum við og sóttum ömmu og fórum með henni að versla. Jæja svo kom ég heim gerði mig sæta fyrir saumaklúbbinn og fór til Kollu. Kræsingarnar sem við komum allar með ummmm sleeeeef Tounge. Kjöftuðum svo saman til um 2 um nóttina en þá var komin smá þreyta í mannskapinn og við fórum heim. Merkilegt samt að þegar ég kom heim fann ég ekki fyrir neinni þreytu og endaði í tölvunni og svo góna á imbann.

Dagurinn í dag aftur á móti er búinn að vera rólegur og mikil leti í gangi. Þannig að hann gekk út á það að borða páskaegg og sýna smá lit í það að læra undir sögupróf, hjálpa til við eldamennskuna og svo bara góna á imbann.

Núna er eg bara að láta mér leiðast og skrifa eitthvað bull sem ég er búin að gera um páskana og væri alveg til í að hafa eitt stykki karlmann hjá mér til að kúra með upp í rúmi, góna á imbann og tala saman Smile. Hvar er sá maður??? Wink

Nóg af bulli komið

後で会おう = see you late (japanese)

The old gang

Fór í innflutningspartý í gær til Helga Bergs vinar míns og ekkert smá flott íbúðin og bara allt það sem var þar inni hehe Grin.  Við Hanna vorum samferða þangað og vá hvað það var gaman að hitta hluta af gamla genginu, vantaði að vísu alveg meira en helminginn en við ætlum að reyna að bæta úr því í sumar og hafa reunion. Við Hanna vorum að rifja upp ýmsa hluti og hvað það myndi vera gaman að gera farið aðeins aftur í tímann Cool. Það sem maður gerði ekki þá LoL hehe. Alltaf að hanga upp á verkstæði hjá strákunum og þessi djömm sem maður fór á, þetta var sko fjör Tounge.

Svo á laugardaginn verður saumó hjá okkur stelpunum, það verður sko svaka fjör og eigum við allar að koma með eitthvað gómsætt Tounge þannig að ég ætla að búa til skinkubrauðtertu ummmmi nammi namm.

Jæja ætli það sé ekki best að fara að elda matinn .

heyrumst síðar Cool


Alveg búin á því!!!

Var í gær og í dag að labba um garðinn og týna upp jólaskraut og ýmislegt drasl. Fengum 3 stráka til að koma í vinnu hjá okkur í gær og í dag og þetta var algjör lúxus að fá þá Smile

En já eftir daginn í gær var ég gjörsamlega búin á því, ég gekk um íbúðina alveg hálfsofandi og skellti mér svo í bað með slökunarolíu og ég alveg steinsofnaði í bað hehe ekkert smá gott Tounge . Þannig að lúrinn gerði það að verkum að ég fór ekki að sofa fyrr en klukkan 11 og vá ég var búin í öllum skrokknum eftir vinnudaginn og með þessar þvílíku harðsperrur. Ég veit ekki hvað ég er búin að labba marga kílómetra í gær og í dag en þeir eru sko alveg nokkuð margir og svo alltaf að stíga upp í og fara niður úr gröfunni.

Ég þarf að fara að koma mér aftur í form fyrir sumarið, bara alveg merkilegt hvað maður er latur á daginn, að vísu rænir skólinn alveg heilmiklum tíma frá manni því maður er alltaf að læra, annað hvort að gera skilaverkefni og bara heimalærdómur, sem minnir mig á það að ég þarf að fara að læra undir þetta sögupróf sem er í næstu viku.

Ok nú skal ég hætta þessu rausi og heyrumst bara.

Vedali più successivamente = see you later (italiano) Cool


Hversu ömurlegt er þetta?

Fór út áðan því ég nennti engan vegin að hanga heima og ég endaði bara ein á rúntinum Crying ekkert smá ömurlegt. Pinch

Þarf að fara að finna mér kall til að gera eitthvað með, einhvern sem nennir að koma með mér út í göngutúra, ferðast með eða bara kúra upp í sófa og hafa kósý. Flest allir vinir manns eru komnir með fjölskyldu og nenna ekki út eða komast ekki út.

Ég ætti kannski að stofna svona útivistaklúbb fyrir einhleypa Grin þannig að ég auglýsi hér með eftir fólki sem vill koma í útivistaklúbb með mér og ég auglýsi líka eftir karlmanni!!! GrinGrinGrin hehe


Dugnaður

Systa hringdi í mig í morgunn og við ákváðum að fara á Laugarveginn með strákana og gefa öndunum brauð. Fórum um 1 leytið og lögðum upp við Hallgrímskirkju og löbbuðum niður Laugarveginn og um bæinn og skoðuðum mannlífið. Gengum framhjá tveimur rónum einn var að reyna að betla hundrað kall af okkur og svo var annar sem ákvað bara að pissa fyrir framan alla þetta var ekkert smá ógeðslegt Pinch Fólk með börnin sín í bænum og svo bara vippar einn róninn litla vininum sínum út og bara pissar fyrir framan alla ooooojjjjjjjjjjj Sick Jæja nóg um þetta fórum við svo niður á tjörn og þar sáum við að fuglarnir vildu ekkert borða brauðið sem var hent til þeirra, þeir syntu bara framhjá brauðinu og litu ekki einu sinni á það, þannig að við sáum engan tilgang í því að gefa þeim brauð svo við ákváðum að fara inn í Hafnarfjörð og gefa öndunum þar brauð. Þar voru þær sko ánægðar með að fá brauð Tounge 

Endurnar og svanirnir á Hamarskotslæknum í Hafnarfirði


Myndataka

Ég, Dóri og Íris fórum út í gær. Ég og Íris tókum myndavélarnar okkar og þrífæturna og keyrðum vestur í bæ út á Gróttu og tókum þar myndir af sólarlaginu og bara landslaginu og svo notuðum við Dóra sem fyrirsætu Wink og tókum alveg fullt af myndum. Við vorum svo að reyna að ná mynd af tunglinu en það bara gekk ekkert rosa vel og þær komu voða furðulega út. Errm en samt dáldið töff því það er eins og það sjáist önnur pláneta við hliðina á tunglinu eða réttara sagt bjarmanum í kringum tunglið

Tunglið

 Svo er ég búin að setja inn fullt af myndum inn á flickr-síðuna mína, slóðin er: 

 

 


http://www.flickr.com/photos/johanna_arnorsd/ 

He he mér tókst að gera tengilinn virkan bloggið mitt hefur bara eitthvað á móti makka Errm, þannig að ég lagaði þetta í tölvunni minni heima en svo getur verið að ég hendi nokkrum myndum hérna inn á bloggið. 

Voyez-vous plus tard = see you later 


Kósínus, sínus og tangens

Nú er alveg voða gaman hjá mér eða hitt og heldur Gasp Nú erum við komin í hornafallareglurnar og váááááá ég var að kvarta yfir reglum úr vigrunum haha þær eru sko ekkert í samanburði við þetta Pinch

He he ég skal koma með eina hornafallareglu fyrir ykkur Tounge bara svona ykkur til yndisauka LoL mú hahahaha.

sin (u+v) = sin u cos v + cos u sin v

og svona reiknum við út úr þessari reglu: 

sin (u + v) = cos (90° − (u + v))

                     = cos ((90° − u) − v)

                     = cos (90° − u) cos v + sin (90° − u) sin v

                     = sin u cos v + cos u sin v

Svo já var ég í prófi í gær vááá ekkert smá stressuð fyrir það og svo þegar ég sé prófið voru þetta ekki nema tvö blöð og bara 5 dæmi. Ég var búin að mikla þetta svo fyrir mér að það var ekki venjulegt Wink en svo á að vísu eftir að koma út úr þessu hvort eitthvað af þessu sé rétt ég veit alla vegana að fyrsta dæmið er rétt Grin hehe. 

Jæja best að halda aðeins áfram með þessa blessuðu stærðfræði.

Véale más adelante = see you later Cool 


 


Próf!!!

He he ég er rosalega ég finn mér allt annað að gera en að læra undir próf. Ég bara er ekki að nenna að læra undir þetta próf því ég veit ég á eftir að fá mjög lélega einkunn, ég veit að ég á ekki að hugsa svona en ég held þetta sé staðreyndin Pinch

Ég er að spá í að herða mig aðeins upp og reyna að læra undir þetta próf, fyrst ég er ein heima að láta mér leiðast.

Pabbi einhvers staðar lengst upp á fjöllum og gengur brösulega hjá þeim að komast til byggða en þeir er nefnilega með einn í eftirdragi sem gerir ferðina enn hægfarari fyrir vikið þannig að ég á ekkert von á honum fyrr en seint í kvöld eða í nótt. Who knows???

Jæja nú er bara harkan sex og fara að læra undir þetta blessaða próf Sideways


blogg blogg

Djö slúbbertinn ég var búin að skrifa alveg góða færslu og svo ýti ég á back-space hnappinn og allt datt út Pinch þannig að ég þarf að byrja aftur upp á nýtt.

Ok þá byrja ég og ætla að muna að c/p núna hehe Wink

Í gærmorgunn fór ég í það að skipta felgunum mínum og reyna að fá nýjar í staðinn en NEI allt kom fyrir ekki þeir áttu engar felgur sem myndu passa undir burrann minn þannig að ég átti bara að fá endurgreiddar felgurnar og endurgreiðslan átti að ganga í gegn seinnipartinn í gær en ég er ekki enn búin að fá endurgreitt og ég er búin að hringja þangað niður eftir og reyna að tala við þá en fékk bara verkstæðið og þeir gáfu mér samband við verslunina en enginn svaraði þar ekkert smá lélegt af þeim þannig að ég þarf að bíða fram yfir helgi með að hringja aftur í þá og tala við þá og ef ekkert gerist mun ég fara þangað niður eftir og skammast í þeim en já nóg með þetta svo bað ég þá um að umfelga nýju dekkjunum yfir á gömlu felgurnar og ég var rukkuð fyrir það en fékk það á helmingsverði, mér finnst alveg að þeir hefðu getað gefið mér þetta frítt. Þetta var ekkert létt að skipta um dekk fyrst á nýju felgurnar og svo að henda þeim undan og setja gömlu undir aftur.

En ég er komin á nýju dekkin og ekkert smá mikill munur, hin dekkin voru alveg orðin ónýtt.

Næsta mál á dagskrá er að mér leiðist pabbi skrapp í jeppaferð um helgina og minns er alein heima að vísu voða fínt en nú þarf ég að tala við sjálfa mig Grin hehe Whistling Var hjá systu í mat áðan og við eða ég eldaði fyrir okkur kjúlla með gratineruðum kartöflum í sveppaostasósu og sveppasósa með þessu og salat ummmmm ekkert smá gott Tounge svo bara góndum við á imbann.

Ætti maður kannski að fara að lúlla sér og byrja daginn snemma á morgunn og halda áfram að læra undir þetta stærðfræðipróf sem er á mánudaginn sem mér kvíður ekkert smá fyrir Frown en eftir næstu viku þá er ég komin í páskafrí í rétt rúma viku sem er voða fínt Smile

Ég er hætt núna og segi bara arrivederci Cool


VESEN!!!

Vá erfiður dagur í dag byrjaði á því að skutlast á Selfoss og setja nýju dekkin mín á felgur hjá frænda mínum og svo fórum við systa að skoða bíl fyrir hana og svo byrjaði vesenið Pinch Fór að skipta um dekk undir burranum mínum og allt gekk eins og í sögu tók smá tíma samt en hafðist en svo þegar ég ætla að bakka út úr bílskúrnum neinei þá hreyfist bíllinn ekkert. Þá voru felgurnar of stórar að framan þannig að ég þurfti að henda þessum dekkjum undan og byrja aftur upp á nýtt að setja hin gömlu dekkin undir Shit ekkert smá mikið mál og svo þurfti ég að hendast inn í Reykjavík og reyna að fá nýjar felgur en nei kallinn sem veit um allt í búðinni var veikur og bara strákur að afgreiða þannig að hann bað mig um að koma á morgunn, ég var svo gjörsamlega búin á því þegar ég kom heim eftir vinnu og ég lagðist upp í rúm og sofnaði en jæja þarf að hunskast í skólann og hanga þar til hálf 11 GetLost ekki að nenna því.

Aidos 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband